Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi

30.07.2008 20:15:03 / Inga

Í sumarfríi

Hvað haldið þið.... maður er bara að upplifa það að vera í sumarfríi í heilar 3 vikur. Ótrúlega þægilegt. Ég fór sum sé í frí kl 15 föstudaginn 11. júli, leikskólinn lokaði kl 13 og staffið var svona rétt að klára að þrífa. Svo opnaði leikskólinn aftur kl 13 síðasta mánudag en ég ákvað hins vegar að vera viku lengur og mæti þvi galvösk til minnar vinnu þriðjudaginn eftir Versó  ;)

Ég var í bænum fyrstu vikuna mína og kom svo norður á fimmtudaginn síðasta. Endalaust þægilegt að komast í sveitina....... og veðrið er bara búið að vera stórkostlegt. Í dag var hitamet slegið víðs vegar um land enda var hér í Reykjadal um 24 stiga hiti, glampandi sól og logn.

Ég er búin að fara nokkrum sinnum í sund á Laugum, búin að fara í golf í Mývatnssveit hehe og labba um í Dimmuborgum. Núna í kveld ætla ég svo að rifja upp gamla takta og skella mér í takkaskóna og sprikla á fótbotavellinum á Laugum. Vona bara að mætingin verði góð.

Jahh.... man ekki eftir fleiru í bili
Hafið það gott um Verslunarmannahelgina :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.07.2008 17:30:31 / Inga

Sól og blíða

Hæhæ... mjög langt síðan að ég skrifaði eitthvað hér.... hehe....

Ég er enn að vinna í leikskólanum Dal í Kópavogi og er það bara fínt. Sérstaklega núna þar sem nokkur börn eru komin í frí. Við erum t.d. bara með 10 börn í staðinn fyrir 20 á minni deild en við erum 6 starfsmenn :d svo það er um að gera að njóta þess hehehe.
Leikskólanum lokar síðan núna á föstudaginn kl 13 og þá er ég komin í sumarfrí í 3 vikur jíbbý jei :d Ég verð eitthvað hér í bænum og svo fer ég norður síðustu helgina í júlí og fram yfir versló 8)

Ég var fyrir norðan í síðustu viku... fórum eftir vinnu á þriðjudeginum og komum heim á sunnudagskveldið... rosa nice frí og gott veður 8)

Annars allt gott að frétta, læt kannski heyra frá mér flótlega aftur hehehe.....

sæl að sinni


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.04.2008 14:12:49 / Inga

Í sveitasælunni

Hæ hó!
Algert bloggleysi hefur einkennt þessa síðu mína í undanfarna tvo mánuði... svo að núna þegar ég er komin heim í heiðardalinn ákvað ég að skella inn einu sveitabloggi ;)
Hætti í vinnunni kl. 14.30 í gær og brunaði beint á flugvöllinn. Lenti svo á Akureyri kl. 16.30 og mamma og Arna tóku á móti mér þar :)
 

Í gærkvöldi skellti ég mér svo á leiksýningu hér í Reykjadalnum, leikfélag Eflingar er að sýna Þar sem Djöflaeyjan rís á Breiðumýri. Ég skemmti mér konunglega, allir leikarar eiga hrós skilið sem og leikstjórinn, tónlist og leikur í hæsta gæðaflokki. ;)

Í dag er svo nokkurs konar afslöppunardagur fyrir framan imbann... eða réttara sagt "Stöð 2 Sport 2"! og geri ég ráð fyrir sigri Manchester United manna hér á eftir! :p

Ég flýg svo aftur suður annað kvöld og stefnan er tekin á Svíþjóð á miðvikudaginn næsta kl. 8! Er að fara í náms- og kynningarferð með leikskólakonunum! ;) Skoðum 4 leikskóla og Astrid Lindgren safnið og okkur er líka boðið í kokteilboð hjá íslenska sendiráðinu í Svíþjóð! Ekki amalegt það :p


En þá er þetta komið gott í bili,
Áfram Manchester United! :d

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.02.2008 21:45:53 / Inga

HALLÓ

Já vá, langt síðan að ég hef kíkt hér inn.... Púff.

Af mér er annars bara fínt að frétta. Hef komist að því að það er sennilega alveg sama á hvaða leikskóla maður vinnur, maður er alltaf jafn þreyttur. Eða alla vega ég, kannski að ég kíki bara til læknis hehe... Nei en þetta er samt fínt, smá skipulag og agi þá er þetta komið ;) Það er alla vega ekkert starfsmannavesen, við erum 5 á minni deild með 20 börn, reyndar er eitt ekki komið, það byrjar lítil stúlka hjá okkur á mánudaginn.

Svo hef ég keypt mér kort í World Class og fór alveg 3x á einni viku, ætla að reyna að vera dugleg í þessu, fór sum sé 2x í Laugar og það er náttúrulega bara bilun hvað sú stöð er stór. En í gær fór ég í nýjustu stöðina sem er staðsett í Kópavoginum bara upp á 15. hæð í glerhúsininu sem er við Smáralindina. Það er mjög kósý stöð og fín.

Var fyrir norðan um daginn á Þorrablóti sem heppnaðist alveg mjög vel. Svo voru pabbi og Arna hér um helgina, en Arna var að keppa á MÍ og fór ég að horfa á hana og það var mjög gaman, enda stóð hún sig mjög vel :D

Jæja, ég vildi bara láta aðeins heyra af mér og þakka fyrir kommentin, það er alltaf gaman að lesa þau og sjá þa hverjir það eru sem kíkja hingað inn.

Sæl að sinni :P 


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 18:22:52 / Inga

Gleðilegt ár

Já sælt veri fólkið, ég sé að það eru alltaf fullt af heimsóknum inn á síðuna svo ég ákvað að rita hér eitthvað. Ég að vísu veit ekkrt hverjir þetta eru því það eru fá komment. heheheh.

Ég kom sum sé suður á laugardaginn 5. janúar 2008, púfff, það er komið 2008 sem þýðir að ég verð 25 á árinu :$ hehehe. Já og eyddi svo sunnudeginum á Akranesi í það að pakka restinni af dótinu mínu niður. Svo fór ég í Kópavoginn og hef hugsað mér að dvelja hér í einhvern tíma ;)

Búin að fá vinnu á leikskóla hér í bæ sem heitir Dalur og ég verð á deild þar sem eru 3 og 4 ára börn, reyndar einhver tveggja ára líka. Og fyrsti dagurinn var í dag og ég held að þetta leggist bara vel í mig. 

Annars hafði ég það mjög gott í þessu langa jólafríi mínu, alveg 2 vikur heima í sveit.

Eyddi gamlárskvöldi í Mývatnssveit og það var mjög gaman, og fór svo á hjónaball á föstudaginn og það var líka mjög gaman ;)

Ég veit svo sem ekki hvað ég á að segja meira, vona að nýtt ár færi ykkur öllum gleði og frið og fullt af nýjum tækifærum sem þið nýtið ykkur, alla vega ætla ég mér að gera það.

Sæl að sinni  


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.12.2007 22:29:58 / Inga

Jólafrí

Jæja, best að blogga í jólaamstrinu. Það er reyndar ekki svo mikið amstur hjá mér þar sem ég er komin á hótel mömmu ;)

Já, það er orðið mjög langt síðan að ég skrifaði eitthvað hér, er bara búin að vera að vinna og reyna að koma mér í jólaskap.

Var fyrir norðan um síðustu helgi en afi átti afmæli og var haldin veisla fyrir hann, hún var bæði löng og skemmtileg.

Svo voru jólatónleikar kirkjukórsins í gærkvöldi og voru þeir frábærir, gekk vel og troðfullur salur. Ég lagði svo af stað norður til að halda jólin í faðmi fjölskyldunnar og var með drekkhlaðin bíl af dóti því ég er að flytja frá Akranesi, þetta samband gekk bara ekki upp. Þannig að ég verð í löngu jólafríi, er reyndar búin að segja upp á Skátaseli og er því ekkert bundin að mæta aftur í vinnu. En ég fer nú samt örugglega 3. jan þangað, en svo er framtíðin óráðin.

Held nú samt að ég haldi mig við suðurlandið til að byrja með.

Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og vona að þið njótið þeirra með frið og gleði í hjarta :D

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 18:07:06 / Inga

Langt síðan síðast

Sælt veri fólkið, ákvað að blogga eitthvað svona síðasta dag nóvembermánaðar. Já bara 1. des á morgun og skemmtilegasti mánuður ársins að ganga í garð. Allir farnir að huga að jólunum, byrja að skreyta eða í það minnsta að finna jólaskrautið.

Um síðustu helgi fórum við norður, flugum eld snemma á föstudagsmorgninum, lentum í smá brasi með bílinn sem okkur var lofað á flugvellinum, en sem betur fer reddaðist það fyrir horn. Við kíktum við í BT Akureyri og síðan á Bautann. Mikið agalega var gaman að koma þangað inn, ekki miklar breytingar sem ég sá svona í fyrstu.

En um kvöldið fórum við öll mín fjölskylda og amma í leikhús á "Óvitana" alveg stórkostleg sýning og vel leikin. Við vorum sum sé 8 saman og rosa fjör. Fórum svo á La vita é Bella á eftir og fengum ljúffengan mat og sjálfur Hr. Ísland að þjóna okkur ;) Ekki slæmt það .... eheh...

Nú svo er bara aftur komin helgi og við erum að fara á jólahlaðborð í Perlunni með starfsmönnum BT, það verður eflaust bara fínt. Svo er ég að fara á kóræfingu á morgun frá 10-14 og sunnudagurinn verður helgaður söng. Það byrjar á því að kórinn á að syngja í messu kl 14 svo verða tvennir tónleikar, þeir fyrri kl 16.30 í safnaðarheimilinu og þeir síðari kl 20 á dvalarheimilinu. Þetta verður svakalegt. En vonandi bara gaman og tekst allt vel.

Að lokum langar mig að tilkynna ykkur að ég er orðinn dreyfingaraðili fyrir Herbalife, þannig að þið vitið hvert þig eigið að snúa ykkur ef ykkur langar að kynnast þessum vörum ;)

Sæl að sinni.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 16:25:16 / Inga

Já fínt, já sæll

Halló halló

Af mér er nú bara fínt að frétta, náði mér enn og aftur í kvef (fer varla að verða fréttnæmt) snemma í síðustu viku og er að ná mér eftir þann fjanda.

Alltaf sama stemmingin í vinnunni, börnin orðin 30 og ég held að það eigi 5 eftir að koma. Svo munum við ekki taka við fleiri börnum, enda 35 alveg fínt.

Fór með leikskólastjóranum til Reykjavíkur eftir hádegi á fimmtudaginn að versla inn helling fyrir leikskólann, það var alveg fínt. Svo á fund með foreldraráði þar á eftir.

Á laugardaginn fórum við Steini í IKEA og keyptum restina af ljósunum inn í íbúðina. Reyndar fórum við svo aftur suður um kvöldið, ég í heimsókn til Ingólfs og hann í starfsmannapartý.

Í gær var dagurinn tekin rólega, horfðum á okkar menn í Man. Utd leggja Blackburn 2-0, alger snilld.

Var að koma heim úr vinnu, fæ klukkutíma pásu því svo er starfsmannafundur í 2 tíma, frá 17-19, alger stemming.... eða þannig.

Svo verður auka kóræfing á morgun, því við erum með tónleika á föstudaginn, á degi íslenskrar tungu. Gaman að því .

Jæja, held að þetta sé orðið gott í bili.....

sæl að sinni.


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 22:25:29 / Inga

Tíminn líður hratt

Komið þið nú margblessuð og sæl.

Ég er nú ekki nógu dugleg að viðhalda þessari síðu, en það er erfitt að blogga þegar flestir dagar eru eins. En þessi vika var reyndar frábrugðin fyrri vikum að því leyti að Arna systir mætti á Skagann á þriðjudagskvöldið. Það var frábært að fá hana og ekki síst vegna þess að það er brjálað að gera í vinnunni hjá Steina svo mér þurfti ekki að leiðast hér einni heima á kvöldin.

Arna kom með mér í vinnu kl 7.30 á miðvikudaginn og verð ég að viðurkenna að börnin voru extra erfið þennan dag, alla vega vorum við báðar algerlega búnar á því kl 15.15 eða þegar mínum vinnudegi var lokið. Við fórum því heim og lögðum okkur til 17..... :$ hehehe.... Svo kíktum við í báðar tískuvörubúðirnar hér á Akranesi og versluðum reyndar líka. Síðan vorum við ægilega duglegar og fórum í ræktina og í sund á eftir. Lögðumst svo upp í rúm og horfðum á video.

Í gær var Arna með mér á Skátaseli frá 11 og var dagurinn bara góður, enda ég í undirbúning eftir hádegi og Arna hjálpaði mér heilan helling.
Mamma, pabbi og Gunnar komu síðan í kvöldkaffi og Arna fór með þeim til Reykjavíkur þar sem þau ætla að dvelja um helgina.

Á morgun er svo æfingadagur hjá kirkjukórnum og síðan ætla ég til Reykjavíkur en við erum að fara í afmælisveislu annað kvöld.

Jæja ég held að ég láti þetta bara gott heita.

Sæl að sinni.  :P


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 00:47:43 / Inga

Það þarf aðeins eina pillu.....

..... og öll þín þraut er á braut!!!

Svona syngur töffarinn Megas en við vorum að koma heim úr Laugardalnum þar sem hann var með stórtónleika ásamt Senuþjófunum. Þetta var hin besta skemmtun, kallinn í feikna formi og söng í 2 tíma samfellt. Gríðarleg stemming var í salnum, fólk söng og trallaði með í sætum sínum. Alla vega fá Megas og Senuþjófarnir hæstu einkunn frá mér.

Við tókum daginn snemma og byrjuðum á því að fara í ræktina þar sem djöflast var á hlaupabrettinu í 30 mínútur og svo tekinn dágóður slatti af magaæfingum og nokkrar armbeygjur og svo teygt rækilega á. Við keyptum okkur nefnilega kort í gær og líkar bara vel. Nú verður tekið á því ;)

Svo fórum við til Reykjavíkur, röltuðum um stund í Smáralindinni og jú eitthvað var þar verslað og svo fórum við á Players og sáum síðari hálfleik Íslendinga og Letta. Landsliðið okkar fær ekki góða dóma að mínu mati..... áttum fullt af færum en engin þorði að þruma á ramman..... Ég velti því fyrir mér hvað Brynjar Björn væri að gera í þessu liði... hann átti 2 mjög góð færi en náði með ótrúlegum hætti að klúðra þeim. Leikurinn endaði sum sé 2-4.

Að leik loknum skelltum við okkur í keilu, ekki alveg dagurinn hans Steina, en ég átti nokkuð góðan leik og náði því að sigra hann ;)

Nú svo var bara haldið af stað á fyrrnefnda tónleika.

Á morgun er ég að fara að syngja í messu, en það er dagur hjónabandsins á morgun og verður messan því tileinkuð ástinni og kærleiknum. Kórinn á að syngja 3 lög, og þar af 1 skírnarsálm því það á víst að skíra eitt barn í messunni.

Annars allt gott að frétta frá Skaganum, bara gaman í leikskólanum, alla vega líður tíminn endalaust hratt, alltaf komin helgi áður en maður veit af :D og svo eru að mig minnir 5 börn á leiðinni til okkar, svo það fjölgar ört á Skátaseli. Gaman að því.

Jæja, þetta er orðið gott- ég vona að þið hafið það gott.

Sæl að sinni.


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.10.2007 21:42:07 / Inga

Komin í sveitina

Sælt veri fólkið :lol:

 Nú er maður bara staddur í Pálmholtinu, alltaf jafn ljúft að koma þar, enda hef ég ekki komið hér síðan 12. ágúst og þar með ekki hitt fólkið mitt í allan þennan tíma. Reyndar hef ég einu sinni hitt móðir mína þar sem hún var stödd í Reykjavíkinni. 

En ég var að vinna til 13.30 á föstudaginn, lagði af stað í bíl norður uppúr 14 með systur pabba míns og hennar manni. Ferðin gekk vel og vorum við komin í Reykjadalinn uppúr 19. Þá var bara setið að borðum og kveldmaturinn snæddur.

Kvöldið var nú tekið með ró og spekkt og farið tiltölulega snemma í háttinn.

Dagurinn í dag var ekki tekin snemma, bara vaknað til að horfa á Man. United taka á móti Wigan. Alveg glæsilegur leikur hjá mínum mönnum og endaði leikurinn 4-0 fyrir United :D

Ég ætla mér svo að taka flugið suður kl 20.30 annað kveld því vinnan kallar á mánudagsmorgninum.

Jæja, ég bið ykkur vel að lifa

Sæl að sinni.  


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 15:40:51 / Inga

Enn rok hehe

Já það er ekkert grín, það er ennþá vitlaust rok og rigning..... heheh... reyndar lægði eitthvað í milli tíðinni en svona er lífið á Skaganum ;)

Ég vildi bara svona láta vita að ég er á lífi og hef það mjög gott. Við fengum íbúðina afhenta um miðjan september og okkur líður ótrúlega vel hér uppi á 9. hæð og allt náttúrulega glænýtt. Erum nokkurn vegin búin að koma okkur fyrir, skáparnir mínir eru í flutningabíl á leiðinni til mín og þá er allt komið og hægt að setja það dót sem á ekki heimastað nú þegar í skápana :D

Alltaf jafn mikið stuð á Skátaseli, heimasíðan okkar er komin á netið: www.akranes.is/skatasel og er Ingólfur bróðir minn hönnuður hennar. Við erum svo stoltar af síðunni, endilega kíkkið á hana við tækifæri.

Ég er komin í kirkjukór Akraneskirkju og það leggst bara vel í mig, hef einnig farið á eina fótboltaæfingu en það var ekki alveg að gera sig, samt allt í lagi, en þetta voru konur sem voru í meistaraflokknum hér áður fyrr... hehhe.... En fínasta hreyfing engu að síður og ég skoraði meira að segja 1 mark :lol:

Ég hef ekki enn fundið helgi sem hægt væri að skella sér norður, en ég hlýt að finna út úr því.....

Man svo sem ekki eftir meiru í bili, vona að allir hafi það súper gott !!

Sæl að sinni.  

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 17:35:39 / Inga

Brjálað rok á Skaganum

Góðan dag,

Var að koma heim úr vinnu, alltaf jafn gaman. Þessi vika er nokkuð þægileg, mæti 9.15 og er búin 17.15 eða bara þegar allir eru farnir heim.

Undanfarna daga hefur rokið verið þvílíkt hér á Skaganum að varla er stætt úti, og rigning með, en sem betur fer ringdi ekki í dag. Ég sit og horfi út um eldhúsgluggan og við mér blasir sjórinn og öldugangurinn er þvílíkur.... sösss... vona að það fari að stytta upp svo hægt sé að fara út að skokka ;) En ég held að ég fari samt á eftir þrátt fyrir rokið, fer bara inn í skógrækt, held að það sé ekki svo hvass þar ;) Maður verður jú að hreyfa á sér rassgatið... ehhehe....

Ég fór með eina stelpu í þvílkan göngutúr upp í íþróttahús, vorum alveg korter að labba þetta í rokinu.... en svo þegar við komum á staðinn var okkur sagt að kennarinn væri veikur svo það væri bara engin tími :( Við þurftum þá að labba til baka, mjög svekktar.... En það er bara 1 stelpa sem er 5 ára hjá okkur og þess vegna átti hún að fá að fara í leikfimi með börnum úr öðrum leikskóla, ekki hægt að láta hana líða fyrir það að vera ein í árgangi.

Annars bara þokkalegt að frétta, gaurinn sem er að fara að kaupa íbúðina sem við munum leigja er um það bil að fara að fá hana afhenta svo þá getur hann lagt gólfefnin á hana og þá er hún bara redy til leigu.... geggjað sko ;)

Svo á litla systir mín 16 ára afmæli... segi bara aftur til lukku með það mín kæra og ég hugsa til þín.

Jæja... best að fara að koma mér í skokk gallann.......

Hafið það gott

sæl að sinni  


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 16:39:33 / Inga

Blogg frá Akranesi

Sælt veri fólkið :lol:

Ég hef fengið vinsælleg tilmæli um að halda áfram að bulla hér, jú ég get svo sem skellt einhverju hér inn þegar eitthvað gríðrarlega skemmtilegt og frásögufærandi gerist í lífi mínu.

Til að byrja með get ég sagt að ég er mjög fegin að vera laus úr Vatnsdalnum, losnaði þar kl 23.30 þann 10. ágúst og þá keyrði ég beint norður í dalinn fagra. Brúðkaupið heppnaðist mjög vel og var líka skemmtilegt, svo á sunnudeginum 12. ágúst fluttist ég til hans Steina míns á Akranes.

Daginn eftir var merkisdagur, fyrir það fyrsra þá varð ég 24 ára og byrjaði í nýrri vinnu, leikskólanum Skátaseli en hann opnaði einmitt þann dag. Hann hefur nú verið starfandi í 9 daga og gengur allt ótrúlega vel og er þetta mjög skemmtilegt :D Börnin eru frábær, eru reyndar bara 19 sem eru byrjuð en enda mjög líklega í 30 og öll þurftu aðlögun..... svo álagið hefur verið ansi mikið. Við verðum með 15 börn sem eru bara 2 ára og hafa ekki verið áður á leikskóla, svo það hefur verið mikið um grátur og erfiðleika, en þau eru svo dugleg, eru orðin mjög góð með sig :D Svo maður er með talsverða strengi í höndunum eftir að halda á þeim til skiptis.... hehe,......

 Svo erum við búin að fá leiguíbúð í nýju húsnæði, lyftuíbúð á 9. hæð...... reyndar bara tveggja herbergja en alveg þokkalega stór, 90 fm. Það er bara verið að setja gólfefnin á, það verður snilld að flytja í glænýtt húsnæði...... 

Sem sagt, ég er mjög hress og lífð er yndislegt ;)

Bestu kveðjur af Skaganum. 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 19:12:47 / Inga

Sumarið brátt á enda!!!

Já sælt veri fólkið, best að henda inn hér nokkrum línum svona fyrst að ég er að hætta hér í Flóðvangi. Ég hreinlega get ekki beðið, hætti hér á föstudaginn og það verður endalaust ljúft að komast loksins heim í sveitarsæluna. En ég stoppa nú ekki lengi þar, bara rétt yfir helgina. Fer í brúðkaup á laugardaginn og svo bara flyt ég á Skagann á sunnudaginn. Sumarið hér hefur verið ágætt, þrátt fyrir puð.

Ég er búin að vera eina stelpan hér síðan á föstudag, en ég fæ nú hana Önnu mína á morgun Fólkið sem er hér núna er alveg snilld og þess vegna er ekkert mál að vera ein að sjá um það. Þau eru 9 og koma í morgunmat milli 8 og 8.30 og eru öll farin út að veiða um 9.30 þannig að ég er vanalega búin að ganga frá öllu um 10.30, þá er svakalega ljúft að leggja sig til 11.30 og fara þá að græja hádegismatinn. Þau koma inn kl 13 og borða bara um 13.30 og fara strax úr salnum þannig að maður rumpar honum af og græjar hann fyrir kvöldmatinn. Þau fara svo út aftur að veiða um 16.30 og koma inn kl 20, fara kannski í gufu og svo vilja þau bara borða kvöldmatinn um kl 21 sem er alger lúxus!! Þau eru svo allaf farin úr salnum um 22.15 og ég er því búin að ganga frá öllu kl 23, þá eru þau bara að fara að tía sig í háttinn, eru vanalega öll farin að sofa bara kl 23.30 sem er bara snilld. 

Hádegismaturinn í dag var niður við á og fórum við með súpu og samlokur þangað, það var mjög gott veður og ferlega nice að þurfa ekki að græja salinn og ganga frá öllu.

Jæja.... ég bið ykkur vel að lifa,

sæl að sinni ;)  


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Klukkan
Dagsetning
21. mars 2010